|
Friday, March 11, 2005
Loksins kominn föstudagur aftur
Mér finnst alltaf svo gaman á föstudögum, alveg að koma frí í vinnu og maður getur slakað aðeins á með makanum og börnum, og skemmir ekki fyrir að maður er vigtaður á laugardögum sko *fliss*
Ég er farin að óttast það verulega að vigtin verði ekki mjög stillt í fyrramálið eins og ég hafði vonast til fyrr í vikunni, en það verður þá bara að hafa það ef svo er.
Ég er ennþá hætt að reykja, komnir 36 tímar núna og ég held mínu striki, fékk ofboðslegt átkast í gærkvöldi og ætlaði að hella mér í nammið (reyki mest á kvöldin) en gat hamið mig upp að vissu marki og fékk mér Korn Flakes með undanrennu bara, að vísu ekki hollt að borða rétt fyrir svefninn en hefði getað verið mikið mikið meira tjón.
Ætla að skella mér á æfingu og blogga meira í kvöld, ég er ekki í bloggstuði núna
Posted at 11:21 am by bumbubolla
Permalink
Thursday, March 10, 2005
Ég drap í seinustu rettunni á miðnætti, og hef ákveðið að segja skilið við þann kafla í lífinu hjá mér (reykingakflann), og mér er ótrúlega létt bara .. að vísu bara 13 tímar, en samt sem áður finn ég ekki knýjandi þörf til reykinga eða narts, er með extra tyggjó bara og vatnsglas mér við hlið.
Ekki skemmir að maðurinn minn hætti að reykja með mér, og eigum við von á að verða um 31.200 krónum ríkari fyrir vikið í hverjum mánuði, ekki slæm verðlaun það!
Anyhow, þetta á víst að vera megrunarblogg en ekki "hætta að reykja blogg", matarmálin eru svo fín núna, fékk mér æðislega gott salat með túnfisk í kvöldmatinn í gær, og það var bara viiiirkilega GOTT, smá ananas og gular baunir og Feta ostur líka .. bara smá sko :)
Svo brenndi ég 710 kal í ræktinni í gær, og gerði heil ósköp af magaæfingum og smá fyrir rass og læri, finn aðeins fyrir rassinum núna en samt ekki beint harðsperrur sem slíkar.
Fer svo eftir ca. klukkutíma að ræktast og ætla að taka brjóstvöðva axlir og tvíhöfða ásamt brennslu, og hlakkar rosalega til að byrja á því (já ég veit .. sjúklegt að hlakka til þess að fara í leikfimi)
Er aðeins að spá í kvöldmatnum, er alltaf að vinna til svona 7-8 á kvöldin þannig að mér gefst lítill tími til að elda, er orðin svo rooooosalega svöng um það leitið, er að spá í að prófa þessi Tortillas sem eru seld tilbúin í búðinni, á að vera eitthvað voðalega hollt og gott, frá Náttúru eða eitthvað þannig.
Ef mér líst ekki á innihaldslýsinguna skelli ég mér bara á annað salat ... :)
En er farin á smá bloggrúnt og svo í ræktina!
Posted at 1:02 pm by bumbubolla
Permalink
Wednesday, March 09, 2005
Er komin aftur eftir sukkferð, voða fínt að fá sér smá óhollt öðru hvoru þó að ég hafi nú ekki lagst í óhollustuna samt sem áður.
Það var ekkert mál að snúa aftur á fyrri braut og ég er komin aftur í hollustuna og aftur mætt í ræktina og sprikla þar eins og lítill bavíani í koffínkasti.
Vigtin var ansi hagstæð í morgun bara miðað við lífernið á manni síðustu vikuna, þannig að ég er vel sátt, vona að laugardags vigtunin verði jafn góð bara .. bíð spennt eftir henni allavega.
Svo er ég ennþá að bjástra við að hætta að reykja ... gengur upp og ofan, en skal vera hætt fyrir næstu mánaðarmót, þoli ekki að vera níkótínþræll ofan á alla hinu ávanana sem maður er með ... tala nú ekki um hvað þetta hefur mikil áhrif á úthaldið hjá manni (og veskið).
Orkuboltinn spurði hvað ég væri búin að léttast mikið alls, svarið er 35 kíló eins og staðan er í dag, skulu verða 40 kg alls innan skamms tíma, svo tekur við baráttan að halda sér í þeirri þyngd :) Sem ætti ekki að vera mikið mál, held að þetta sé að verða að mínum lífstíl núna, sakna þess að fara í ræktina ef ég kemst ekki, og líður illa í maganum ef ég borða þungan og illmeltanlegan mat ... mér líður einfaldlega frábærlega vel og vil líða svona vel áfram.
Posted at 4:13 pm by bumbubolla
Permalink
Thursday, March 03, 2005
Vigtun í dag .. ekki á lau.
Vegna ferðalags var ákveðið að vigta mig í dag ... ég skokka hress í bragði (keyri alla 500 metrana) niður í líkamsrækt og skella mér á vogina ... 73.5!!!!!!!
JEIJ!!!
Annars er ég að verða of sein í flug, blogga meira eftir helgina.
Posted at 8:20 am by bumbubolla
Permalink
Sunday, February 27, 2005
Jæja, ég fékk mér smá nammidag í gær.
Hagaði mér mjög vel fram yfir kvöldmat, en fékk mér þá hálfan bragðaref og nokkra Buffalo vængi .. ekkert brjálað sukk en samt mikið meira en nóg.
Hagaði mér svo til fyrirmyndar í dag, en fékk mér 2 bakaðar kartöflur með kvöldmatnum .. sem var skárra en hitt sem var í boði, franskar.
Fór svo út að skokka/hlaupa áðan og ætla í ræktina í fyrramálið að brenna þessum ís af mér, og lyfta svo eftir hádegið!
Ég skal ná af mér 2 kg fyrir páska þó það verði það síðasta sem ég geri .. og hananú :)
Posted at 11:31 pm by bumbubolla
Permalink
Saturday, February 26, 2005
Var að koma úr ræktinni þar sem ég var vigtuð og mæld.
Hef misst 1.5 cm af hvoru læri, 2 cm af mitti en ekkert af upphandlegg.
Vigtin fór bara niður um 200 grömm :( EN! Ég er komin niður í 26% fitu, sem ég er mjög ánægð með .. er semsagt slétt 75 kg. í fötum og 175 cm á hæð.
Posted at 10:58 am by bumbubolla
Permalink
Friday, February 25, 2005
Föstudagur til fitubrennslu
Góða skapið er komið aftur :)
Fór í ræktina í gær og brenndi 495 á orbinu, og 96 í stigavélinni ... úff hvað ég var þreytt í gærkvöldi sko, sofnaði eins og steinn og rumskaði ekki fyrr en núna klukkan rúmlega átta í morgun, útsofin og fín.
Matarmálin eru í fínum gír, langar ekki einu sinni að svindla neitt .. er samt að fá nett ógeð á kjúklingi og sardínum.
Svo verður stigið á vigtina í fyrramálið og vonandi ákveður hún að verðlauna mig fyrir duglegheitin í vikunni og sýna mér fallega tölu.
Er líka með dúndrandi harðsperrur í rassinum og lærunum .. OHH það er svo gott! :)
Mig vantar hugmyndir að kvöldmatnum í kvöld .. er alveg geld í hausnum.
Posted at 9:31 am by bumbubolla
Permalink
Thursday, February 24, 2005
Gærdagurinn varð eitthvað svo glataður að ég nenni varla að blogga um hann .. en það verður víst.
Ég allavega fór í ræktina, var búin að vera þar í smátíma þegar maðurinn minn kemur og dregur mig út og segir mér frekar leiðinlegar fréttir, þannig að ég var ekki í stuði til að halda áfram í leikfimi ...
Ég missti matarlystina þannig að ég borðaði eiginlega ekkert eftir klukkan 4, fyrr en jú klukkan varð 10 í gærkvöldi, þá greip mig mikil nammiþrá, en eg stóðst hana og fékk mér Kelloggs Special K.
Anyways, ætla að fara aftur í dag ... og haga mér í matarræðinu, þarf eiginlega að skella mér í Bónus að kaupa meira af "hollum" mat, þetta er að verða frekar tómlegt hérna núna.
Posted at 11:38 am by bumbubolla
Permalink
Wednesday, February 23, 2005
Ohh .. ógeðslega þreytt og mygluð eitthvað í dag.
Hef verið að standa mig ágætlega í matarræðinu, sagði nei takk við pizzunni sem var í matinn í gær og fékk mér eggjaköku, og það var ekki einu sinni mikið erfitt ... var hálf hissa eiginlega.
Fór í ræktina í gær og orbaði í 40 mín, brenndi þar 511 kal. fór svo á stigavélina og klifraði 100 hæðir og eyddi 96 kal minnir mig ... þokkalega sátt við það. Svo gerði ég magaæfingarnar mínar og fór að vinna.
Í dag ætla ég aftur í ræktina ... var að hugsa um að taka rass og læri + brennslu, sé til hvað ég hef mikinn tíma.
Langar líka að benda ykkur á að kíkja á síðuna hennar Lilju, þvílíkur árangur sem hún hefur náð stelpan, hún er orðin mjóna!
Allavega .. páskáatakið mitt er í fullum gangi, með einstaka hikksta, hef ekkert svindlað en varð mjög leið og fúl í gær og fannst ég eiga eitthvað svo mikið eftir ... en come on! Rúmlega 30 kíló fokin út í buskann, fer ekki að gefast upp þegar svona lítið er eftir, það er bara ekki hægt.
En jæja, ætla að skúra hérna heimilið og skella mér svo í líkamsræktina.
Posted at 10:10 am by bumbubolla
Permalink
Sunday, February 20, 2005
Latasti átaksbloggarinn .. ég .. hefur ákveðið að tjá sig aðeins í dag.
Mig langar að byrja á því að þakka ykkur öllum sem hafið kommentað hjá mér, rosalega hvetjandi að vita af ykkur þarna.
Matarræðið gengur vel, hef ekki látið sykur inn fyrir mínar varir í 3 sólarhringa núna, og hreinlega er ég að spá í að hætta að hafa "nammidaga" sem slíka.
Mér finnst sykur kveikja svo rosalega í fíkninni hjá mér að ég get ekki hætt ef ég byrja, þessvegna fékk ég mér light popp í staðinn fyrir hefðbundið nammi í gær og naut þess alveg í botn!
Matseðillinn er alltaf svipaður alla daga, nema að ég er að spá í að bæta inn baunaréttum og þessháttar núna á næstunni, er komin með svo mikið leið á kjötinu :(
Í kvöldmatinn hjá mér verður kalkúnapottréttur og brún hrísgrjón .. og mig hlakkar svo til að borða!
Hey já ... ég fór á vigtina í ræktinni í gærmorgun, hún sagði 75.2 og ég er drulluánægð með það miðað við að rúm vika fór í bolluát og annað óhollt.
Svo sagði heimilisvigtin 69.5 en hún er eitthvað biluð held ég .. sýnir alltaf minna en hin vigtin .. væri samt mikið meira gaman ef að það væri sko hin vigtin sem væri biluð og sýndi of mikið hehehe.
Öll fötin mín eru of stór á mig, og ég tími ekki að kaupa ný fyrr en ég er komin í endanlega tölu, þannig að ég verð að vera eins og drusla til fara þangað til, vonandi verður það ekki mikið meira en 2 mánuðir. ÉG ÆTLA AÐ VERA ORÐIN FLOTT Í SUMAR! Og ég get það vel ef ég held mér við efnið, enga leti sko!
Hérna er svo matseðill morgundagsins.
MM: Special K m/undanrennu
MK: Kiwi
HM: Súrdeigsbrauð m/sardínum og skyrdrykkur
K: Hrökkbrauð m/osti
KM: Einhver fiskur .. ekki búin að ákveða hvernig
KK: Epli og grænt te
Langar svo að lokum að skora á ykkur öll að koma í þrusu átak fram að páskum með mér, það er mánuður til páska og það er mjög fínn tími framundan .. sólin hækkar á lofti og vorið nálgast! :)
Posted at 5:29 pm by bumbubolla
Permalink
|
|